Erlent

Um 50 fórust í sprengjuárás

Íraskir karlmenn flytja lík eins fórnarlambsins frá moskunni.
Íraskir karlmenn flytja lík eins fórnarlambsins frá moskunni. MYND/AP

Um fimmtíu manns létu lífið í sprengjuáras á mosku sjía-múslima í Bagdad í morgun, rétt áður en föstudagsbænum lauk. Að minnsta kosti 45 manns til viðbótar særðust.

Lögreglan sagði upphaflega, að þremur sprengjum hefði verið varpað á moskuna en embættismenn sögðu síðar að allt benti til þess að um sjálfsmorðsárás hafi verið að ræða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×