Menning

Úr ólíkum áttum

Óskar Magnússon les úr smásagnasafni sínu í kvöld.
Óskar Magnússon les úr smásagnasafni sínu í kvöld.

Rithöfundar og fjármálaspekúlantar ætla að lesa upp úr bókmenntaverkum sínum í Anima galleríi í kvöld og annað kvöld og sætir það vissum tíðindum því ekki er algengt að slíkir leiði saman hesta sína.

Í kvöld les Óskar Magnússon, forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar, úr nýju smásagnasafni sínu Borðaði ég kvöldmat í gær? en auk þess les Sindri Freysson úr ljóðabók sinni (M)orð og myndir og Silja Aðalsteinsdóttir úr nýrri þýðingu sinni á bókmenntaverkinu Wuthering Heights eftir Emily Bronte.

Dagskráin hefst kl. 20 í kvöld sem og annað kvöld þegar Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar KB banka, les úr Ljóðmælum Jóns Arasonar sem hann stóð fyrir útgáfu á.

Hjörtur Pálsson tekur þátt í upplestrinum með Ásgeiri og í tengslum við hann mun Gerður Bolladóttir sópransöngkona og eiginkona Ásgeirs syngja lög af geisladiski sem þau hjónin gáfu út í sameiningu árið 2004 og ber nafnið Jón Arason In Memorian. Þá mun Einar Már Guðmundsson setja svo punktinn yfir i-ið með lestri úr nýrri ljóðabók sinni Ég stytti mér leið framhjá dauðanum.

Boðið verður upp á hressingu og eru allir velkomnir á upplestrana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.