Menning

Upplestur á Gljúfrasteini

Heimsókn á Gljúfrastein. Bókmenntaunnendur geta gengið að heimilislegum upplestrum á sunnudögum í desember.
Heimsókn á Gljúfrastein. Bókmenntaunnendur geta gengið að heimilislegum upplestrum á sunnudögum í desember.

Hefð hefur skapast fyrir því að höfundar lesi úr nýjum bókum í húsi skáldsins Halldórs Laxness á Gljúfrasteini í desember. Þessar samkomur hafa ætíð verið vel sóttar enda myndast oft skemmtileg stemmning í stofunni þegar höfundar lesa við þessar heimilislegu aðstæður.

Allir velkomnir á upplestra þessa og er aðgangur ókeypis. Alls verða upplestrarnir þrír eða alla sunnudaga á aðventunni en dagskrána í heild má nálgast á heimasíðu Gljúfrasteins.

Dagskráin hefst í dag kl. 16 en þá mun Einar Már Guðmundsson lesa úr ljóðabókinni Ég stytti mér leið framhjá dauðanum, Kristín Steinsdóttir les úr skáldsögunni Á eigin vegum, Sölvi Björn Sigurðsson les úr skáldsögunni Fljótandi heimur og Steinar Bragi les úr skáldsögu sinni Hið stórfenglega leyndarmál Heimsins.

Þess má einnig geta að í móttökuhúsi er margmiðlunarsýning helguð ævi og verkum Halldórs Laxness, þar er einnig minjagripaverslun og aðgöngumiðasala. Í námunda við Gljúfrastein eru fallegar gönguleiðir. Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 10-17.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.