Daniel A. Pinero eða DP One er einn af efnilegustu Hip-Hop plötusnúðum
Bandaríkjanna um þessar mundir. DP One er þrjú elementin uppmáluð þarsem hann er plötusnúður, rappari og breakdansari. Hann er einn af
fjórum í hóp sem kallar sig Turntable Anihilists og meðlimur í Rock
City Rockers, TCK og Zulu Kingz.
Hip-Hop, R&B, Reggae, House ásamt Freestyle, Breaks, Funk og Salsa eru þær tónlistarstefnur sem DP One kemur á framfæri þegar hann kemur
fram. Hann sló fyrst í gegn á hinum víðfræga klúbb í New York, Buddah
Bar, fyrir tíu árum síðan. Hann hefur verið pllötusnúður fyrir
heimsfræga rappara á borð við The Bad Seed, Medina Green, Don Scavone og Natural Resource ásamt fleirum.
Ásamt því hefur hann deilt sviði með RUN-DMC, Boot Camp Click, Slick
Rick, Talib Kweli, Mos Def, Common og M.O.P ásamt fleirum. Hann var
resident plötusnúður á Braggin' Rites á mánaðarlegum kvöldum eftir
Bug'd Eyez. Einnig hefur hann spilað á stöðum sem og The Skate Key,
The Limelight, The Tunnel Downtime, SOB's, Club Ivy og Baby Jupiter.
Auðvelt er að átta sig á því að DP One er einn af heitustu Hip-Hop
plötusnúðum heims um þessar mundir og virkilega kraftmikill snúður.
Forsala aðgöngumiða fer fram á Midi.is og kostar miðinn einungis 1500 krónur.
D.P. One á NASA ásamt íslenskum plötusnúðum á NASA v/Austurvöll þann
18. Nóvember 2006 kl. 23:00.