Innlent

Gefur kost á sér í 4.-5. sæti

Gunnar Axel Axelsson
Gunnar Axel Axelsson

Gunnar Axel Axelsson hefur tilkynnt að hann sækist eftir 4.-5. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi þann 4. nóvember.

Gunnar Axel er Hafnfirðingur og starfar sem sérfræðingur í launa- og kjaramálum hjá Hagstofu Íslands. Auk prófs í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst hefur Gunnar Axel lokið sveinsprófi í framleiðslu frá Hótel- og matvælaskóla Íslands.

Gunnar Axel hefur tekið virkan þátt í starfi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og situr sem fulltrúi flokksins í miðbæjarnefnd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×