Innlent

Svona var fundur ráð­herra og ríkislög­reglu­stjóra um landa­mærin

Atli Ísleifsson skrifar
Dómsmálaráðherra og ríkislögreglustjóri á fundinum.
Dómsmálaráðherra og ríkislögreglustjóri á fundinum. Vísir/vilhelm

Guðrún Hafsteindóttir dómsmálaráðherra og Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri hafa boðað til upplýsingafundar um stefnu stjórnvalda í málefnum landamæra og landsáætlun um samþætta landamærastjórnun.

Í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu kemur fram að fundurinn hefjist klukkan 11, fljótlega að loknum ríkisstjórnarfundi. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á Vísi.

„Á fundinum verður kynnt stefna stjórnvalda í málefnum landamæra og landsáætlun í málefnum landamæra. Minnisblað um stefnuna verður lagt fram til kynningar á ríkisstjórnarfundinum og stefna og landsáætlun kynnt fyrir fjölmiðlum að fundi loknum.

Viðstaddir verða dómsmálaráðherra og ríkislögreglustjóri,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×