Innlent

Kári gefur kost á sér í 3.-4. sæti

Kári Páll Óskarsson gjaldkeri Ungra vinstri grænna, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3.-4. sæti í forvali VG í Reykjavík og Suðvesturkjördæmi.

Kári hefur verið félagi í VG frá árinu 1999 og gegnt margvíslegum störfum fyrir flokkinn. Hann hefur setið í stjórn Ungra vinstri grænna frá árinu 2004, þar sem hann er nú gjaldkeri.

Kári hefur lokið BA námi í ensku og frönsku frá HÍ þar sem hann leggur nú stund á MA nám í þýðingafræði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×