Innlent

Sólskin og hiti

Þegar ég var að rogast með töskurnar inn í anddyrið á hótelinu vék sér að mér maður og ávarpaði mig á íslensku. Hann sagðist hafa dvalið hér í viku og átt illa vist, því að hér væri bæði sólskin og hiti og ekkert sjónvarp á herbergjunum. Hann saknaði íslenskrar veðráttu, íslensks mataræðis, íslenskrar tungu og alls annars sem íslenskt er.

ÞETTA rennir stoðum undir þá kenningu að ferðalög og sumarleyfi séu fyrst og fremst til að sanna fyrir fólki að heima sé best. Þegar fólk er búið að vinna í ellefu mánuði er það skyldað til að fara í frí. Sérstakar ferðaskrifstofur sjá um að senda fólk á ókunna staði, einkum svokallaða ferðamannastaði, þar sem töluð eru framandi tungumál, lofts­lagið er öðruvísi en heima og vatnið inniheldur skuggalegar bakteríur og svonefndar túristahjarðir reika um villtar.

SÚ erfiða lífsreynsla að slíta erlendan gjaldmiðil út úr hraðbönkum í myrkum húsasundum, að svitna, sólbrenna, villast, drekka saltan sjó, týna vegabréfinu sínu og falla í ræningjahendur forhertra leigubílstjóra skapar djúpa og innilega heimþrá sem ágerist með hverjum degi, einkum ef tímanum er varið í langar rútuferðir til að skoða óeftirminnilegar rústir eða hversdagsleg náttúru-undur og kvöldin fara í að umreikna einkennilega gjaldmiðla í íslenskar krónur og komast að þeirri niðurstöðu að kostnaðurinn við hina ódýru leyfisferð sé löngu kominn úr böndunum.

HEIMÞRÁIN breytist svo í friðsælan fögnuð þegar eldvígslunni lýkur og fornfáleg flugvélin lendir í Keflavík við dynjandi lófatak. Samstundis tekur minnið að vinna úr hinni erfiðu reynslu. Hrakningar, flugnabit og matareitranir breytast í ljúfar minningar. Hámarki sælunnar er náð á fyrsta vinnudegi í kunnuglegu umhverfi innan um samverkafólk og vini sem hlýðir agndofa á mergjaðar lýsingar á ferðalagi þar sem allir erfiðleikar voru yfirstignir af ráðagóðri hagsýni og jafnaðargeði. Framundan er notalegt og friðsælt umhverfi heimilis og vinnu næstu ellefu mánuði - en að þeim tíma liðnum er tímabært að fara á stjá á nýjan leik til að rifja upp þau fornu sannindi, að heima er best!




Fleiri fréttir

Sjá meira


×