Fótbolti

Arsenal tapaði í Moskvu

Brasilíumennirnir Gilberto og Dudu eigast hér við í Moskvu í kvöld
Brasilíumennirnir Gilberto og Dudu eigast hér við í Moskvu í kvöld NordicPhotos/GettyImages
Arsenal varð að sætta sig við 1-0 tap gegn CSKA Moskva í G-riðli Meistaradeildar Evrópu í dag. Mark CSKA skoraði Daniel Carvalho í fyrri hálfleik, en leikurinn var mjög fjörugur. Arsenal sótti grimmt að marki CSKA eftir þetta, en bæði lið fengu reyndar dæmd af sér mörk vegna rangstöðu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×