Innlent

Boðað til helgarfundar um vatnalög

Þingheimur hefur verið boðaður saman til fundar á morgun til að ræða frumvarp til vatnalaga. Umræður um frumvarpið hafa þegar staðið yfir í rúman sólarhring og ganga ásakanirnar á víxl milli stjórnarliða og stjórnarandstæðinga.

Stjórnarandstæðingar saka stjórnarliða um að ætla að einkavæða vatnsauðlindir landsins en því neita stjórnarliðar sem segja stjórnarandstæðinga beita ofbeldi í formi málþófs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×