Sport

Mauresmo í efsta sæti heimslistans

Mauresmo komst áður í toppsæti heimslistans um skamma hríð árið 2004
Mauresmo komst áður í toppsæti heimslistans um skamma hríð árið 2004 NordicPhotos/GettyImages
Franska tenniskonan Amelie Mauresmo er kominn í efsta sæti heimslistans í annað sinn á ferlinum, en nýr listi var birtur í dag. Mauresmo, sem vann sigur á opna ástralska meistaramótinu á dögunum, er komin upp fyrir belgísku tenniskonuna Kim Clijsters. Justine Henin-Hardene er í þriðja sæti listans, Maria Sharapova í því fjórða og Lindsay Davenport í fimmta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×