Sport

Við játum okkur ekki sigraða

Juan Ramon Lopez Caro hefur trú á sínum mönnum þrátt fyrir skellinn stóra í gær
Juan Ramon Lopez Caro hefur trú á sínum mönnum þrátt fyrir skellinn stóra í gær NordicPhotos/GettyImages

Juan Ramon Lopez Caro, stjóri Real Madrid, segir sína menn ekki ætla að játa sig sigraða í spænska bikarnum þrátt fyrir að vera kjöldregnir í fyrri leik sínum gegn Real Zaragoza í gærkvöldi 6-1.

"Lið Zaragoza var miklu betra en við í gær og átti svo sannarlega skilið að vinna, en aðeins skræfur myndu segja að þetta væri búið. Við erum með frábært lið sem getur gert frábæra hluti rétt eins og Zaragoza gerði í gær go við höfum fulla trú á því að geta snúið dæminu við," sagði Caro.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×