Innlent

Frumvarp um RÚV samræmist enn ekki reglum EES

MYND/GVA

Frumvarp menntamálaráðherra um Ríkisútvarpið samræmist enn ekki reglum EES. Þessu halda Samtök atvinnulífsins fram.

Þegar frumvarp til laga um Ríkisútvarpið var lagt fram á Alþingi síðastliðinn vetur gerðu Samtök atvinnulífsins ýmsar athugasemdir við það í umsögn sinni. Í dag sendu þau svo frá sér umsögn um hið nýja RÚV-frumvarp sem þau segja fela í sér vissa framför, til að mynda að ætlunin sé að stofnað verði hlutafélag um reksturinn, að öllu leyti í eigu ríkisins, í stað sameignarfélags eins og áður var ráðgert. Guðlaugur Stefánsson, hagfræðingur hjá Samtökum atvinnulífsins, segir það æskilegra rekstrarform, fyrst og fremst vegna þess að ríkið sé þá laust við ábyrgð af skuldbindingum félagsins ásamt því að hlutafélagsformið sé mun sveigjanlegra og heppilegra rekstrarform fyrir svona atvinnurekstur.

En samtökin hafa margt við hið nýja frumvarp að athuga. Guðlaugur segir að skilgreiningin á þjónustu Ríkisútvarpsins í almannaþágu sé alltof víðtæk og að frumvarpið sé í andstöðu við markmið samkeppnislaga. Mikilvægustu athugasemdirnar í fyrri umsögn SA lutu að því að skilgreining á útvarpsþjónustu í almannaþágu væri alltof víðtæk og óljós. Engin markverð breyting hafi orðið á þessu mikilvæga ákvæði frumvarpsins og SA sé ljóst að miðað við fordæmi í EES-rétti hafi íslensk stjórnvöld talsvert svigrúm í þessu efni.

Ekki er þó heimilt að víkja frá þeim skilyrðum sem nefnd eru í athugasemdum ESA til íslenskra stjórnvalda. Ólíkt því sem EES-reglur um ríkisaðstoð krefjast og getið er um í athugasemdum ESA, er ekki með skýrum hætti mælt fyrir um skyldu RÚV til að veita tiltekna og magngreinda þjónustu í almannaþágu gegn þeim ríkisstyrk sem félaginu er ætlaður, heldur er ákvæðið skrifað nánast eins og heimildarákvæði í kringum alla núverandi starfsemi RÚV, að sögn Guðlaugs.

Frumvarpið er nú til meðferðar í menntamálanefnd Alþingis og að sögn Sigurðar Kára Kristjánssonar, formanns nefndarinnar, mun það ekki verða sent til annarrar umræðu í þinginu fyrr en að nokkrum vikum liðnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×