Innlent

Prófkjör hjá Framsóknarflokknum á Akureyri á morgun

MYND/KK

Framsóknarmenn á Akureyri og í Hrísey halda á morgun opið prófkjör fyrir sveitarstjórnarkosningaarnar í vor. Nítján manns eru í framboði, þrettán karlar og sex konur, en nýr oddviti flokksins verður kjörinn þar sem Jakob Björnsson, oddviti framsóknarmanna til fjölda ára, gefur ekki kost á sér áfram. Prófkjörið fer fram á milli klukkan tíu og átta á morgun á Akureyri og mili klukkan tvö og hálffimm í Hrísey en von er á fyrstu tölum upp úr klukkan níu annað kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×