Innlent

Framhaldsskólanemar gagnrýna styttingu stúdentsprófs

Menntamálaráðuneytið.
Menntamálaráðuneytið.

Mörg þúsund framhaldsskólanemar hafa sent menntamálaráðherra póstkort þar sem þeir gagnrýna vinnubrögð hans vegna styttingar námstíma til stúdentsprófs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagsmunaráði íslensrka framhaldsskólanema. Þar segir enn fremur að framhaldsskólanemum þyki ljóst að menntamálaráðherra neyðist til að hlusta á þessar fjölmörgu raddir og endurskoði málið af einhverri alvöru en ekki með viðlíka hætti og hefur verið viðhafður hingað til.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×