Innlent

Vilja rannsókn á sölu Búnaðarbankans

Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra sagði af og frá að hún óskaði eftir rannsókn Fjármálaeftirlitsins. Hún sagði allt sem Vilhjálmur segir um blekkingaleik hafa verið hrakið.
Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra sagði af og frá að hún óskaði eftir rannsókn Fjármálaeftirlitsins. Hún sagði allt sem Vilhjálmur segir um blekkingaleik hafa verið hrakið. MYND/Valli

Tveir þingmenn stjórnarandstöðunnar óskuðu eftir því við upphaf þingfundar að rannsókn yrði hafin á sölu Búnaðarbankans og blekkingum sem Vilhjálmur Bjarnason, aðjúnkt við Háskóla Íslands, segir kaupendur hafa beitt.

Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, bað Valgerði Sverrisdóttur viðskiptaráðherra að beina því til Fjármálaeftirlitsins að rannsaka málið. Valgerður sagði það af og frá enda um sjálfstæða eftirlitsstofnun að ræða, auk þess sem allt sem Vilhjálmur hefði sagt verið hrakið.

Sigurjón Þórðarson, Frjálslynda flokknum, vildi líka láta rannsaka málið en forsætisráðherra sagðist hafa fengið þær upplýsingar frá Ríkisendurskoðun í morgun að ekkert nýtt hefði komið fram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×