Sport

Fisichella staðráðinn í að verða meistari

Giancarlo Fisichella er mjög bjartsýnn á gengi Renault á næsta tímabili
Giancarlo Fisichella er mjög bjartsýnn á gengi Renault á næsta tímabili NordicPhotos/GettyImages

Ítalski ökuþórinn Giancarlo Fisichella hjá Renault segist staðráðinn í að vera á meðal þeirra bestu í baráttunni um heimsmeistaratitil ökuþóra á komandi tímabili í Formúlu 1.

"Ég var í vandræðum á síðasta tímabili, en ég er bjartsýnn fyrir komandi tímabil og ætla mér að sigra. Það hefur gengið prýðilega á æfingum undanfarið og ég er mjög sáttur við þær framfarir sem við höfum náð með bílinn," sagði Fisichella, en bíll liðsins í fyrra var sagður henta betur aksturslagi heimsmeistarans Fernando Alonso, en nú á dæmið að hafa snúist við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×