Sport

Florentino Perez segir af sér

Florentino Perez situr hér við hlið David Beckham þegar hann gekk í raðir Real Madrid á sínum tíma
Florentino Perez situr hér við hlið David Beckham þegar hann gekk í raðir Real Madrid á sínum tíma NordicPhotos/GettyImages

Florentino Perez, forseti Real Madrid, sagði af sér í kvöld og mun fyrrum Fernando Martin, fyrrum aðstoðarforseti félagsins taka við embætti hans. Real hefur ekki unnið titil síðan 2003 í stjórnartíð Perez, sem þótti réttast að segja af sér þar sem árangurinn hefur verulega látið á sér standa undanfarið.

"Ég mat það þannig að félagið þyrfti að breyta til og prófa eitthvað nýtt og því hef ég ákveðið að segja af mér," sagði Perez.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×