Innlent

Jarðgöng undir Vaðlaheiði vegna álvers?

MYND/KK

Hugmyndir um jarðgöng undri Vaðlaheiði við Akureyri hafa nú fengið byr undri báða vængi eftir undirritun viljayfirlýsingar um byggingu álvers við Húsavík í gær. Menn sjá fyrir sér að Húsavík og Akureyri verði eitt atvinnusvæði með tilkomu álversins, en göngin myndu stytta leiðina á milli um 16 kílómetra og með nýjum vegi og brú yfir Skjálfandafljót myndi leiðin styttast enn. Hún yrði þá ámóta og á milli Reykjavíkur og Selfoss og ekki um fjallveg að fara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×