Sport

Tiltekt í vændum hjá Real

Ummæli Martin þykja benda til þess að tekið verði til í herbúðum Real Madrid á næstunni
Ummæli Martin þykja benda til þess að tekið verði til í herbúðum Real Madrid á næstunni AFP

Fernando Martin, sem á dögunum tók við embætti forseta Real Madrid í kjölfar afsagnar Florentino Perez, segist ekki kæra sig um að vera með lið fullt af milljónamæringum sem ekki leggi sig fram á knattspyrnuvellinum.

Þessi skilaboð þykja bera vott um að hann hafi í hyggju að taka til í herbúðum liðsins í sumar, en stjörnum prýtt lið Real hefur alls ekki staðið undir væntingum í vetur.

"Ég vil ekki vera með lið fullt af milljónamæringum í höndunum, heldur sækist ég eftir hóp leikmanna sem leggur allt að veði til að bregðast ekki stuðningsmönnum liðsins og eru tryggir stefnu félagsins 24 tíma sólarhrings," sagði Martin.

"Ég er ekki maður sem hikar við að taka erfiðar ákvarðanir ef mér þykir ljóst að einhverjir leikmenn eru bara hérna til að hirða kaupið sitt, en þeir leikmenn sem gefa allt í vinnu sína munu hljóta óskipta náð og stuðning minn sem og annara."

Martin segist þegar hafa sett saman nefnd manna sem mun kanna hvort kominn sé tími til að taka til í herbúðum liðsins og hefur látið í veðri vaka að þeir sem ekki standast rannsókn nefndarinnar og hafa ekki lagt sig alla fram undanfarið - verði einfaldlega látnir fara frá félaginu. Brasilíski framherjinn Ronaldo er einn þeirra sem hefur verið gagnrýndur hvað mest fyrir framlag sitt að undanförnu og þykir viðmót hans hafa slæm áhrif á liðsandann.

Þessar yfirlýsingar forsetans koma eflaust til með að hafa jákvæð áhrif á stuðningsmenn liðsins, sem flestir eru búnir að fá upp í kok af slæmu gengi liðsins í vetur, sem kórónaðist með tapi liðsins gegn slöku liði Mallorca á dögunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×