Innlent

Prófkjör hjá framsóknarmönnum á Austurlandi

Frá Fáskrúðsfirði.
Frá Fáskrúðsfirði.

Prófkjör er haldið í dag á vegum Framsóknarflokksins í fjórum sveitarfélögum sem munu sameinast við sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Þetta eru Fjarðabyggð, Austurbyggð, Mjóafjarðarhreppur og Fáskrúðsfjarðarhreppur. Sex gefa kost á sér í fjögur sæti sem kosið verður í, þar af fjórir í fyrsta sætið. Prófkjörið er opið öllum þeim íbúum í sveitarfélaginu sem undirrita stuðningsyfirlýsingu við Framsóknarflokkinn. Það hófst klukkan tíu í morgun og lýkur klukkan átján en von er á úrslitum þegar líður á kvöldið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×