Viðskipti innlent

Uppgjör Bakkavarar í takt við væntingar

Frá aðalfundi Bakkavarar.
Frá aðalfundi Bakkavarar. Mynd/Stefán Karlsson

Hagnaður Bakkavarar Group nam 715 milljónum króna á fyrsta fjórðungi ársins en hagnaður fyrir skatta nam 985 milljónum króna. Heildartekjur námu 31,8 milljörðum króna. Rekstrarhagnaður Bakkavarar Group nam 2,3 milljörðum króna en það er 159 prósenta aukning. Hagnaður fyrir skatta og fjármagnsliði nam 3,4 milljörðum króna en það er aukning um 236 prósentur frá sama tíma á síðasta ári.

Handbært fé frá rekstri nam 2,4 milljörðum króna og frjálst fjárflæði frá rekstri var 1,5 milljarðar króna.

Hagnaður var 0,36 pens á hlut og jókst um 37 prósent miðað við sama tímabil í fyrra. Arðsemi eigin fjár var 18,1 prósenta samanborið við 18,8 prósent á sama tímabili 2005.

Þetta er svipuð niðurstaða og greiningaraðildar höfðu spáð fyrir um.

„Þetta er besta afkoma á fyrsta ársfjórðungi í sögu félagsins. Afkoman er áfram góð í Bretlandi og er nú mun betri á meginlandi Evrópu eins og væntingar stóðu til. Við höfum stigið fyrstu skrefin á hinum ört vaxandi neytendamörkuðum Asíu með kaupum á 40% hlut í Creative Foods í samstarfi við Glitni. Eftir lok tímabilsins keyptum við New Primebake, stærsta framleiðanda kældra brauðvara í Bretlandi, sem gerir okkur kleift að hagræða enn frekar í rekstri og breikka vöruúrval okkar í Bretlandi. Við munum halda áfram að leita tækifæra til frekari innri og ytri vaxtar á öllum mörkuðum okkar," segir Ágúst Guðmundsson, starfandi stjórnarformaður Bakkavarar Group, sagði um uppgjörið.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×