Innlent

Þúsundir missa allar vaxtabætur sínar

MYND/GVA

Margir eiga eftir að fá óvæntan fjárhagslegan skell þegar álagningarseðlarnir berast í sumar, því þúsundir heimila munu missa allar vaxtabætur vegna hækkunar húsnæðisverðs. Þetta kom fram í máli Atla Gíslasonar þingmanns Vinstri grænna á Alþingi í gær.

Atli benti á að vegna hækkunar húsnæðisverðs hækkaði eignastaða fólks umfram viðmiðunarmörk vaxtabóta, en þau hafi ekki verið hækkuð til samræmis. Auk þess að missa vaxtabætur hækka svo fasteignagjöldin vegna hækkunar á íbúðaverði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×