Sport

Þrjú mörk komin í Minsk

Staðan í leik Íslands og Hvít-Rússa er orðin 1-2 fyrir Ísland í undankeppni HM í knattspyrnu en leikurinn fer fram í Minsk. Ásthildur Helgadóttir kom Íslandi í 0-2 á 51. mínútu úr þröngu færi en heimastúlkur minnkuðu muninn 2 mínútum síðar. Síðari hálfleikur er nýhafinn. Fyrra mark Íslands kom á 27. mínútu eftir hornspyrnu íslenska liðsins og hefur Katrín Jónsdóttir verið skráð fyrir því marki.

Með sigri í leiknum getur Ísland komist í 7 stig, jafnmörg og Tékkar hafa og tyllt sér þannig í annað sæti riðilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×