Sport

Ísland lagði Hvít-Rússa í Minsk

Ásthildur Helgadóttir skoraði seinna mark Íslands í Minsk í dag.
Ásthildur Helgadóttir skoraði seinna mark Íslands í Minsk í dag.

Ísland lagði Hvít-Rússa, 1-2 í undankeppni HM í knattspyrnu kvenna nú rétt í þessu en leikurinn fór fram í Minsk. Ísland komst yfir á 27. mínútu með marki Katrínar Jónsdóttur eftir hornspyrnu og Ásthildur Helgadóttir kom Íslandi í 0-2 á 51. mínútu úr þröngu færi. Heimastúlkur minnkuðu muninn 2 mínútum síðar.

Með sigrinum komst Ísland í 7 stig, hafa jafnmörg stig og Tékkar í öðru sæti riðilsins. Svíar eru efstar í riðlinum með 10 stig. Næsti leikur Íslands verður á Laugardalsvelli 18. júní n.k. gegn botnliði Portúgals sem er án stiga í fimmta og neðsta sæti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×