Erlent

Mannskæð gassprenging í Moskvu

MYND/AP

Að minnsta kosti tveir létu lífið og sex slösuðust þegar gassprenging varð í fjölbýlishúsi í Moskvu í morgun. Nokkrir veggir hússins hrundu við sprenginguna. 17 slökkvubílar komu þegar á vettvang og 9 björgunarsveitarhópar leita nú í rústum hússins af einhverjum sem þar kunna að liggja.

30 íbúa í húsinu sakaði ekki og voru þeir þegar fluttir á öruggan stað. Rússneskir fjölmiðlar segja að ný gasleiðsla hafi verið tengd við húsið í gær og líkast til hafi eitthvað farið úrskeiðis við þá framkvæmd með þessum hörmulegu afleiðingum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×