Viðskipti innlent

Lánshæfismat Straums-Burðaráss staðfest

Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur staðfest lánshæfismat Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka í kjölfar tilkynningar um nýjan forstjóra og breytingar í hluthafahópi. Fyrirtækið staðfesti langtímaeinkunnina BBB- og segir horfur lánshæfiseinkunna stöðugar.

Fitch Ratings gefur bankanum jafnframt skammtímaeinkunnina F3, óháðu einkunnina C/D og stuðningseinkunnina 3.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×