Erlent

Ók á áhorfendur að kappróðri

Nærstaddir reyna að ná til ökumannsins
Nærstaddir reyna að ná til ökumannsins MYND/AP
Tíu slösuðust þegar ökumaður ók bíl sínum í gegnum áhorfendaskara við kappróðrarkeppni og út í Ohio-á í Bandaríkjunum í gær. Fjórir slösuðust, þar á meðal ökumaðurinn. Allir dvelja þeir enn á sjúkrahúsi og tveir eru í lífshættu. Ökumaðurinn, sem er átján ára, var meðvitundarlaus þegar hann var dreginn upp úr ánni. Talið er að hann hafi misst meðvitund af óþekktum orsökum og það hafi valdið slysinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×