Erlent

Komu í veg fyrir hryðjuverk

Bandaríska Alríkislögreglan, FBI, tilkynnti í dag að starfsmönnum þeirra hefið tekist að koma í veg fyrir hryðjuverkaárásir á samgöngukerfi New York borgar. Hópur erlendra hryðjuverkamanna hafði unnið að skipulagningu hryðjuverkanna um nokkurt skeið.

Líbönsk yfirvöld hafa handtekið einn af meintum hryðjuverkamönnum sem unnu að skipulagningunni, Amir Andalousli. Fulltrúi Bandarísku Alríkislögreglunnar segir að svo virðist sem að skipulagningin hafi ekki verið langt á veg komin en allar slíkar aðgerðir séu litnar mjög alvarlegum augum af bandarískum yfirvöldum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×