Erlent

Basajeff ráðinn af dögum

Mynd/AP
Rússneskar hersveitir réðu Shamil Basajeff, leiðtoga tsjetsjenskra aðskilnaðarsinna, af dögum í morgun. Þær höfðu hendur í hári hans í sjálfstjórnarhéraðinu Ingúsetíu en hann hafði verið eftirlýstur lengi, meðal annars fyrir fjöldamorðin í barnaskólanum í Beslan í Norður-Ossetíu haustið 2004. Rússnesk yfirvöld segja að Basajeff hafi áformað hryðjuverk í Suður-Rússlandi á sama tíma og leiðtogarfundur G8-ríkjanna fer fram í Pétursborg um næstu helgi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×