Innlent

Milljónatjón af völdum veggjakrots

MYND/E.Ól

Skemmdir af völdum veggjakrots nema tugum milljóna króna á ári. Borgarstjóri segir að ekki verði lengur við þetta unað og ætla hann að grípa til aðgerða.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur verið í miklum hreingerningum um borgina að undaförnu og segir hann að nú verði veggjakrot ekki liðið lengur. Hann segir íbúa um alla borg þurfa að greiða milljónir í hreinsun á eigum sínum og tekur sem dæmi að kostnaður Orkuveitunnar einnar nemi um 25 milljónum króna á ári.

Hann segist hafa átt í viðræðum við lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins um hvernig best verði tekið á þessu máli en helst segist hann þó vilja fá að hitta þá sem stunda þessa iðju og gera við þá samkomulag. Eitt sé þó víst að veggjakrot verði ekki liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×