Innlent

Gengi lækkar hjá Landsbankanum og KB banka

Mynd/Vísir

Þrátt fyrir mjög góð hálfsársuppgjör KB banka og Landsbankans, hafa báðir bankarnir lækkað í verði síðan tölurnar voru birtar. Gengi á bréfum í KB banka hefur lækkað um 3% og um 1% í Landsbankanum. Bakkavör kynnti líka mjög góðar afkomutölur í gær, en þrátt fyrir allt lækkaði úrvalsvísitalann í Kauphöllinni í gær og hefur nú lækkað um tæp 5% frá áramótum. Það er mikill viðsnúningur frá því að hafa hækkað um 40% á ári, tvö ár í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×