Innlent

Samtök herstöðvaandstæðinga mótmæla

Samtök herstöðvaandstæðinga efna til mótmælastöðu fyrir framan bandarískasendiráðið vegna stríðsins í Líbanon, föstudaginn 28. júlí kl. 17:30. Á fundinum munu íslenskir friðarsinnar láta í ljósi andstöðu sína við

stuðning Bandaríkjanna við árásarstefnu Ísraelsríkis á hendur nágrönnumsínum og þess krafist að íslensk stjórnvöld skipi sér í raðir þeirra ríkja sem krefjast friðar í Líbanon og að alþjóðalög verði virt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×