Innlent

Fíkniefni finnast á Sauðárkróki

Rúmlega tvítugur maður var handtekinn á Sauðárkróki aðfaranótt sunnudags fyrir vörslu fíkniefna. Maðurinn var tekinn í teiti í heimahúsi og fundust á honum rúm sex grömm af hassi og tæplega þrjú grömm af amfetamíni sem hann ætlaði til sölu. Málið telst upplýst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×