Borgarastyrjöldin á Sri Lanka hafin á ný 2. ágúst 2006 12:06
Svo virðist sem borgarastyrjöldin á Sri Lanka sé hafin á ný að öllu leyti nema að nafninu til. Danir, Svíar og Finnar hafa ákveðið að kalla friðargæsluliða sína þar heim. Norðmenn hafa farið þess á leit við Íslendinga að þeir sendi fleiri menn til norrænu eftirlitssveitarinnar og eftir er að ákveða hvort orðið verður við þeirri ósk. Uppreisnarmenn Tamíltígra réðust á þrjár herstöðvar í morgun sóttu inn á svæði þar sem stjórnarher landsins hefur hingað til ráðið lögum og lofum. Herinn segir tugi Tamíltígra hafa fallið. Vopnahlé hefur verið í gildi í landinu síðan 2002 en til átaka kom í síðustu viku vegna deilna um vatnsból á svæði þar sem búa fimmtíu þúsund manns. Loftárásir hersins á vígi Tamíltígranna héldu áfram í morgun, áttunda daginn í röð. Sænska utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að draga alla friðargæsluliða sína frá Sri Lanka. Tamíltígrarnir kröfðust þess að friðargæsluliðar frá Evrópusambandinu yfirgæfu landið eftir að ESB ákvað að skilgreina Tamíltígrana sem hryðjuverkasamtök og frysta bankainnistæður þeirra. Danir og Finnar höfðu þegar tilkynnt um brotthvarf sinna manna. Norðmenn hafa farið þess á leit við Íslendinga að þeir sendi fleiri menn til norrænu eftirlitssveitarinnar og er nú í athugun að fjölga Íslendingum á Sri Lanka úr þremur í 10 til 12. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um málið að svo stöddu.
Erlent Fréttir Mest lesið „Þetta er ekki sanngjarnt, Einar“ Innlent „Þetta var bara eitthvað sem hún þurfti að stoppa“ Innlent Kennari stakk átta ára stúlku til bana Erlent Sýkingin líklega af völdum bacillus cereus Innlent Skurðlæknir grunaður um kynferðisbrot gegn 299 börnum Erlent Eins og hjónunum hafi verið komið fyrir í sérstökum stöðum Innlent Hnífurinn fannst í skotti forráðamanna Innlent Ásthildur Lóa berst við ríkið fyrir dómi Innlent Fyrst féll meirihlutinn og nú falla trén Innlent Sitja sem fastast og hleypa gröfum og vörubílum ekki fram hjá Innlent Fleiri fréttir Uppgjör milli Hvíta hússins og dómstóla í vændum Kennari stakk átta ára stúlku til bana Fundust látnir í tjaldi á hæsta fjalli Svíþjóðar Skurðlæknir grunaður um kynferðisbrot gegn 299 börnum Girnist Gasa og vill íbúana burt Segja Ísraela hafa brotið vopnahléssamninginn Ítrekar að honum er alvara um Kanada Forsetinn segir af sér Kölluðu Páfagarð „siðspilltan“ og „barnaníðs“ ríki Nasistadýrkun og gyðingaandúð: Ye hættur á Twitter Bandaríkin og öfgahægrið efst á baugi hjá þýsku kanslaraefnunum Selenskí segir nauðsynlegt að tryggja varanlegan frið Ísraelsher hverfur frá Netzarim en framhaldið óljóst Hótar 25 prósent tollum á allt stál og ál Rannsaka andlát breskra hjóna í Frakklandi Tilfinningarík stund þegar Taílendingarnir komust heim Tilfinningarnar réðu för þegar fjölskyldur hittu gíslana Afturkallar öryggisheimildir Biden Myrti sjö konur og þrjá karla Sagði upp hjá DOGE vegna rasískra ummæla Götubörn útsett fyrir kynferðisofbeldi: „Það er engin miskunn“ Sjónvarpskokkur ásakaður um áralanga óviðeigandi hegðun Sóttu fimm kílómetra inn fyrir varnir Rússa Einn höfunda Project 2025 aftur háttsettur í Hvíta húsinu Segja stefnt að því að fækka starfsmönnum úr 10.000 í 300 Lýsa yfir neyðarástandi á Santorini Trump beinir spjótum sínum gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum Dómari frystir biðlaunatilboð Trump fram yfir helgi Sýrlendingar og Bosníumaður meðal látinna „Pabbi, bjargaði ég systur minni?“ Sjá meira