Innlent

Tvöfalt fleiri á sjúkrahús á Akureyri en í fyrra

Mikill erill var á fjóðrungssjúkrahúsinu á Akureyri í nótt en tvöfalt fleiri komu á bráðamóttöku miðað við sama dag í fyrra. Þá kom lögreglan upp um 27 fíkniefnamál í gær og í nótt. Annars staðar á landinu fór skemmtanahald vel fram.

26 manns komu á bráðamóttökuna í nótt og voru flestir þeirra komnir vegna áverka sem þeir hlutu í slagsmálum, eins og nefbrot, skurði á andliti og höfði og þess háttar. Einn skarst illa á hendi og einhverjir voru með skurði eftir glerbrot. Að sögn vakthafandi læknis á bráðamóttökunni man hann ekki aðra eins nótt en sömu nótt í fyrra komu um 13 manns á bráðamóttökuna sem þýðir að fjöldi þeirra sem leituðu á bráðamóttöku hefur tvöfaldast.

Að sögn lögreglunnar á Akureyri hefur enginn kæra verið lögð inn vegna líkamsárásar þessa nótt en einn maður varð fyrir líkamsárás á tjaldstæðinu við Þórsheimilið í gærmorgun og er hann talinn höfuðkúpubrotinnhins vegar tók hún 27 manns sem voru með fíkniefni á sér og ætluðu þrír þeirra það til dreifingar og sölu. Þá voru brotnar rúður í gistiheimili við Brekkugötu og í bifreið og dráttarvél við Glerártorg og annarri bifreið við Skarðshlíð. Eru þessir staðir í gönguleiðinni úr miðbænum að tjaldsvæðinu við Þórsheimilið. Í nótt var miðbærinn troðfullur af fólki og talsverð ölvun. Nokkuð var um pústra og ýfingar en en vel tókst að stilla til friðar.

Í Vestmannaeyjum gekk nóttin vel fyrir sig og gistu aðeins tveir fangageymslur lögreglunnar. Leiðindaveður var í Eyjum, rigning og 15 metrar á sekúndu. Í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli eru nú um 10 þúsund manns, ýmist í Galtalæk, Fljótshlíð eða Múlakoti, Þar hefur allt gengið að óskum um helgina þrátt fyrir mannfjöldann, gestir hafa verið til fyrirmyndar og umferð um




Fleiri fréttir

Sjá meira


×