Innlent

Hátíðahöld ganga víðast vel fyrir sig

Um níu þúsund manns lögðu leið sína á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.
Um níu þúsund manns lögðu leið sína á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. MYND/Jóhann Ingi

Væta hefur sett nokkuð strik í reikninginn í Vestmannaeyjum, einkum eftir að líða tók á gærkvöldið og nóttina. Nokkuð rennsli hefur verið í sjúkraskýli í Herjólfsdal og heilsugæslustöðina inni í bænum. Þar mun aðallega um að ræða skurði vegna glerbrota og tognanir og jafnvel beinbrot eftir að fólk hefur runnið í votum brekkunum. Lítið mun hins vegar vera um líkamsárásir. Ein stúlka leitaði á náðir neyðarmótttöku vegna gruns um nauðgun.

Gísli Óskarsson, okkar maður í Vestmannaeyjum, ræddi við þýska stúlku á Þjóðhátíð í gær. Sara Holzer, hefur unnið hér á landi um skeið ásamt danskri vinkonu sinni. Hún ákvað að leggja land undir fót og skella sér á þjóðhátíð og kvaðst hafa mjög gaman af henni.

Um tíu þúsund manns eru á hátíðum í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli en alla jafna búa þrjú þúsund manns í umdæminu. Þrátt fyrir þennan mikla fjölda hafa hátíðahöldin gengið mjög vel fyrir sig að sögn lögreglu. Flestir eru í Galtalæk, um fimm þúsund manns en þrjú til fjögur þúsund manns eru á Kotsmóti Hvítasunnukirkjunnar. Talsverð umferð hefur verið um umdæmið en hún hefur verið áfallalaus til þessa.

Ein fjölmennasta samkoma helgarinnar er á Laugum í Þingeyjasveit. Þar eru átta til tíu þúsund manns samankomnir á unglingalandsmóti UMFÍ. Þar hefur allt gengið vel fyrir sig utan að þrír piltar voru sendir heim eftir að þeir sáust drekka áfengi.

Öflugt umferðareftirlit hefur verið um helgina, hvort tveggja úr lofti og af jörðu niðri. Hvort sem það er því eða öðru að þakka hefur umferðin meira og minna gengið vel fyrir sig ef undan eru skilin tvö slys í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×