Innlent

Þrjár leitað hjálpar eftir nauðgun

Þrjár stúlkur hafa leitað til Afls, systursamtaka Stígamóta, eftir að hafa verið nauðgað á Akureyri um helgina. Þá leituðu tugir manna á bráðamóttöku Fjórðungssjúkrahússins og segist vakthafandi læknir ekki muna aðra eins nótt og þá síðustu.

Tvær stúlknanna leituðu til Afls í gær en sú þriðja í morgun. Hjá Afli fengu stúlkurnar aðhlynningu og ráðgjöf auk þess sem þeim var fylgt eftir á sjúkrahús og boðin gisting. Ein stúlknanna ákvað að kæra nauðgunina í dag en hinar höfðu ekki gert það síðast þegar fréttist.

Sæunn Guðmundsdóttir hjá Afli segir að reynslan af síðustu árum sé sú að nóttin sem nú rennur upp sé alla jafna versta nótt Verslunarmannahelgarinnar. Því hafi þeim hjá Afli brugðið að þegar væru þrjár nauðganir komnar inn á þeirra borð fyrir þessa nótt. Rétt er að geta að fórnarlömb nauðgunar geta leitað sér aðstoðar hjá Afli í Rauðakrosshúsinu á Þingvallastræti 32.

Mikið hefur verið um slagsmál á Akureyri um helgina en að sögn lögreglu er lítið um að fólk kæri líkamsárásir. Sú alvarlegasta átti sér stað á tjaldsvæði á Þróttarsvæðinu þar sem maður var höfuðkúpubrotinn líkt og við sögðum frá í fréttum okkar í gærkvöld.

Læknir á bráðamóttöku Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri sagðist í samtali við NFS ekki muna aðra eins nótt og síðustu nótt. Þá leituðu 26 manns á bráðamóttökuna, flestir með áverka sem þeir hlutu í slagsmálum. Þetta er tvöfalt meiri fjöldi en aðfaranótt sunnudags síðustu verslunarmannahelgi.

Lögregla hefur þurft að hafa mikil afskipti af fólki vegna fíkniefna. Alls hafa um fimmtíu mál komið til kasta lögreglunnar, flest af fólki sem hafði efni til einkanota. Þrjú mál hafa hins vegar komið upp sem tengjast fíkniefnasölum. Þá hefur lögregla stöðvað um tuttugu manns við ölvunarakstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×