Innlent

Kona lést í bílslysi

Kona á fertugsaldri lést í árekstri á Suðurlandsvegi austan við Selfoss um klukkan hálf eitt í nótt. Konan var undir stýri fólksbíls sem lenti í árekstri við jeppa sem kom úr gagnstæðri átt.

Jeppinn valt og eldur kom upp í honum en þremur mönnum sem voru í honum tókst að forða sér úr jeppanum í tíma. Þeir slösuðust lítillega í árekstrinum og voru fluttir á sjúkrahús. Tildrög slyssins eru í rannsókn en hvorki er grunur á ölvunar- né hraðakstri. Ekki er hægt að greina frá nafni hinnar látnu að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×