Innlent

Jón Gunnarsson sækist eftir 1. sæti

Jón Gunnarsson alþingismaður hefur ákveðið að sækjast eftir því að leiða framboðslista í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi vegna kosninga til Alþingis í vor.

"Þessi ákvörðun mín er tekin að vel athuguðu máli og eftir samráð og hvatningu margra félagsmanna í Samfylkingunni víðs vegar um kjördæmið. Ákvörðun um að sækjast eftir 1. sæti er tekin í kjölfar þess að Margrét Frímannsdóttir hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi forystu á framboðslista Samfylkingarinnar í kjördæminu.

Ég hef í þrennum kosningum leitt framboðslista til sigurs í sveitarstjórnarkosningum, starfað lengi við rekstur og stjórnun fyrirtækja og nú síðast setið á Alþingi frá árinu 2003. Þar hef ég setið fyrst í Fjárlaganefnd og síðan í Sjávarútvegs- og Utanríkismálanefnd þingsins.

Reynsla mín af því að stýra meirihluta í sveitarstjórn og af stjórnun og rekstri fyrirtækja hefur nýst mér ákaflega vel í störfum mínum á Alþingi en þar hef ég lagt áherslu á efnahags og atvinnumál ásamt því að vera málsvari aukins jöfnuðar í samfélaginu. Ég tel að reynsla mín og bakgrunnur geti nýst afar vel til þess að leiða lista Samfylkingarinnar til öflugrar kosningabaráttu og kraftmikils starfs inn á Alþingi í framhaldi af kosningunum," segir Jón í tilkynningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×