Innlent

Íbúafjöldi Seltjarnarness tvöfaldaður

Hugmyndir eru um að tvöfalda íbúafjölda Seltjarnarness með því að búa til heila eyju við sunnanvert Nesið. Slíkar framkvæmdir myndu kalla á mikil samgöngumannvirki í vesturbæ Reykjavíkur, svo að Seltirningar einangruðust ekki.

Hugmyndin sem Fasteignafélagið Klasi hefur sett fram um þessa gríðarlegu landfyllingu úti í sjó er afar nýstárleg hér á landi, enda státa Íslendingar af einhverju mesta landrými á hvern íbúa, sem þekkist á Vesturlöndum.

Ingimar Sigurðsson, formaður skipulags- og mannvirkjanefndar Seltjarnarness, segir að hugmynd Klasa hafi verið lögð fram í bæjarstjórn og henni vísað þaðan til skipulagsnefndar. Gert er ráð fyrir að á svæðinu ríksi allt að 4.500 manna blönduð byggð þar sem verði fjölbýlis-, rað- og parhús. Einnig verði verlsunarmiðstöða þar að finna, íþróttamiðstöð, skóla og jafnvel kirkju.

Ef til kæmi yrði þessi framkvæmd ekki einkamál Seltyrninga, því þeir þurfa að komast til og frá Nesinu um Reykjavík. Ingimar segir þetta ekki orðið að veruleika, óvíst sé hvaða afgreiðslu málið fái í skipulagsnefnd sem hafi ekki fengið málið til efnislegrar umfjöllunar. Umferðarmál verð þó stærsta hindrunin.

Strandlengjan í Víkinni yrði látin halda sér sem hugsanlega gæti auðveldað fyrir framgangi málsins. Ingimar segir þó allt of snemmt að segja til um það.

Landfylling við Seltjarnarnes er engin fjarlæg framtíðarhugmynd, því nú er hafin kynning á landfyllingu norðanvert við Nesið reyndar margfalt minni í sniði en eyjan, þar seem Hagkaup og Bónus myndu meðal annars reisa stórmarkaði og norðan við hana, meðfram Eiisgrandanum velta Reykvíkingar svo fyrir sér gríðar milkilli landfyllingu norður að Ánanaustum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×