Innlent

Ólafur Elíasson verðlaunaður í Danmörku

MYND/Hari

Dönsku krónprinshjónin veittu Ólafi Elíassyni myndlistarmanni menningarverðlaun við athöfn í óperuhúsinu í Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Þetta er í annað sinn sem hjónin veita þessi verðlaun og svo vill til að Ólafur hannaði sjálfur verðlaunastyttuna, sem hann fékk, ásamt sex milljónum íslenskra króna. Við þetta tækifæri sagði Friðrik krónprins meðal annars að list Ólafs einkenndist af bestu þáttum í norður-evrópskri list.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×