Dein vill halda Wenger í 10 ár til viðbótar 28. september 2006 14:12 Arsene Wenger hefur verið mjög sigursæll á síðasta áratug NordicPhotos/GettyImages
Í dag eru liðin tíu ár síðan franski knattspyrnustjórinn Arsene Wenger tók við enska úrvalsdeildarliðinu Arsenal og hefur stjórnarformaður félagsins gefið það út í tilefni dagsins að Wenger sé æviráðinn hjá félaginu ef hann óskar þess og vonast til að halda honum í að minnsta kosti áratug í viðbót. Wenger hefur fest sig í sessi sem einn virtasti knattspyrnustjóri heimsins í stjórnartíð sinni hjá Arsenal og hefur skilað í hús þremur meistaratitlum og fjórum bikarmeistaratitlum. Það sem er þó ef til vill merkilegast við tíð Wenger á Englandi, er sú staðreynd að aldrei á nokkrum tímapunkti hefur hann verið talinn valtur í sessi í starfi sínu, enda hafði liðið aldrei endað neðar en í öðru sæti í stjórnartíð hans fyrr en á síðustu leiktíð. "Ég held að Wenger elski félagið og á sama hátt elskar stjórnin allt það sem hann hefur komið með að borðinu til okkar. Ég hef alltaf sagt að ef sá dagur rennur upp að hann vilji stíga af stóli sem knattspyrnustjóri félagsins - verður alltaf nóg pláss fyrir hann í öðrum stjórnarstöðum hjá Arsenal, enda stenst honum enginn snúning þegar kemur að þekkingu hans á leiknum," sagði David Dein, stjórnarformaður félagsins.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Enski boltinn „Schumacher lét mér finnast ég vera gagnslaus og hæfileikalaus“ Formúla 1 Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Fótbolti Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Fótbolti United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Enski boltinn Veðjar öllum ágóðanum af bardaga sínum á sigur Tysons Sport Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Benni og Drungilas mæta á gamla heimavöllinn Sport Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Fótbolti Fleiri fréttir Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Gæti fengið sjö leikja bann fyrir rasisma í garð samherja Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Sjáðu allt sem Rúben Amorim gerði á móti Man. Utd í Meistaradeildinni Coote dómari í enn verri málum Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag Vildi ekki deila Match of the Day með konu og hafnaði tilboði BBC Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Bruno til bjargar Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Nkunku til sölu þrátt fyrir að vera markahæstur Nistelrooy yfirgefur Man United með tilkomu Amorim Fékk símtal frá Arteta en bætti Ödegaard í hópinn Myndband sýnir dómara urða yfir Liverpool og kalla Klopp kuntu Fundað um framtíð Guardiola í vikunni Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Arteta svekktur eftir jafntefli á Brúnni: „Snýst um að vinna“ „Frammistaðan var góð“ Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Jafntefli sem gerir lítið fyrir bæði lið Sjá meira