Innlent

Umferðartruflanir á Reykjanesbraut

Næstu daga verður unnið við að taka í notkun tvöfalda Reykjanesbraut frá

Kaplakrika í Hafnarfirði norður fyrir mislæg gatnamót við Urriðaholt.

Einnig verður umferð hleypt þar á mislæg gatnamót.

Meðan á þessu stendur

þarf því að víxla umferð milli akbrauta sem veldur frekari truflun á umferð

en verið hefur. Væntanlega lýkur þessum áfanga fyrir fimmtudag 12. okt.

Verið er að ganga frá lýsingu á þessum kafla og verður kveikt á henni í

áföngum þessa og næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×