Skutu 12 ára stúlku til bana 5. nóvember 2006 13:00 Ísraelskir hermenn á Gaza-svæðinu. MYND/AP
Ísraelskar leyniskyttur skutu 12 ára palestínska stúlku til bana í bænum Beit Hanoun á Gaza-svæðinu í gær. Aðgerðir Ísraela þar síðan á miðvikudag hafa kostað á fimmta tug Palestínumanna lífið. Á sama tíma er þjóðstjórn Palestínumanna sögð ná næsta leyti. Auk stúlkunnar féllu 7 herskáir Hamas-liðar og 1 óbreyttur borgari féllu í árásum ísraelskra hermanna í gær. Talsmaður Ísraelshers segir það leið mistök að stúlkan hafi fallið. Leyniskyttan hafi beint byssu sinni að herskáum Palestínumanna en óvart hæft stúlkuna. 44 Palestínumenn hafa fallið síðan á miðvikudag þegar Ísraelar hófu árásir sínar á Beit Hanoun, sem liggur nærri landamærunum að Ísrael. Aðgerðirnar eru sagðar miða að því að koma í veg fyrir að Palestínumenn geti skotið flugskeytum þaðan á ísraelskt landsvæði. En á meðan barist er á Gaza-svæðinu reyna háttsettir Palestínumenn að mynda þjóðstjórn og mun aðeins dagspursmál um hvenær það takist. Háttsettur aðstoðarmaður Ismails Haniyehs, forsætisráðherra í heimastjórn Palestínumanna, segir grundvöllinn sem sú stjórn byggi á ekki fylgja að öllu kröfum vesturveldanna. Skorið hefur verið á fjárstuðning við heimastjórn Hamas-liða þar sem þeir hafa ekki viljað viðurkenna Ísraelsríki og afneita þeim sem fremji óhæfuverk í nafni samtakanna.
Erlent Fréttir Mest lesið Segja „fit to fly“ vottorð brjóta gegn siðareglum lækna Innlent Byrja að rukka sérstaklega fyrir ökuskírteini á plasti Innlent Faðir Dags gagnrýnir Kristrúnu: „Dagur veginn og metinn og léttvægur fundinn“ Innlent Ekkert gaman að heyra að allt sé að fara til fjandans Innlent Trump lék ruslakarl í Wisconsin Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent „Ég sé bara íhaldssemi hérna“ Innlent Skrekkur í lausu lofti vegna verkfalls: „Þetta er út í hött“ Innlent Halda áfram leit eftir eyðileggingu flóðanna Erlent Nágranna Erlu enn saknað: „30 bílar bara í hrúgu hérna fyrir utan hjá mér“ Erlent Fleiri fréttir Leita manns sem skildi eftir sprengiefni á lestarstöð í Berlín Sækja hraðar fram í Dónetsk Trump lék ruslakarl í Wisconsin Halda áfram leit eftir eyðileggingu flóðanna Nágranna Erlu enn saknað: „30 bílar bara í hrúgu hérna fyrir utan hjá mér“ Segjast rannsaka ásakanir um kosningasvik í Georgíu Beðin um að tilkynna líkfundi Óttast að hermenn Kim öðlist reynslu af hernaði Sagði Trump heltekinn hefndarvilja Tala látinna á Spáni hækkar hratt Biden í bobba eftir ummæli um rusl Loftvarnir Íran verulega laskaðar eftir árásir helgarinnar „Við getum ekki þrýst á fólk að koma til baka“ Naim Qassem tekur við stjórn Hezbollah Sporvagn af sporinu í Osló og inn í verslun Ákvörðun Ísrael að banna UNRWA vekur reiði og ótta Bæjarstjóri austurrísks bæjar skotinn til bana Jafnaðarmenn í Litháen unnu sigur Vara eindregið við mengun frá gashelluborðum Japanska ríkisstjórnin missti meirihluta sinn Vill hvorki gera meira né minna úr árásunum en ástæða er til Orðljótir stuðningsmenn Trump létu gamminn geisa í New York Líkamsleifar manns úr Sverris sögu frá 1197 fundnar Þingmanni vikið úr Verkamannaflokknum eftir líkamsárás Ætla ekki að viðurkenna úrslitin og kalla eftir mótmælum Vannærðir hermenn Kim sagðir „fallbyssufóður“ Flutningabíl ekið inn í þvögu í Tel Aviv Lokaði unnustann í ferðatösku þar til hann lést Vilja nota Patriot-kerfi á skipum til að skjóta niður kínverskar eldflaugar Sagður hafa stöðvað stuðningsyfirlýsingu Sjá meira