Auðveldur sigur Reading á Tottenham 12. nóvember 2006 15:22 NordicPhotos/GettyImages
Íslendingalið Reading sýndi enn og aftur að liðið er komið til að vera í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið skellti Tottenham 3-1 á heimavelli sínum. Reading situr nú í 11. sæti deildarinnar og fór upp fyrir Lundúnaliðið með sigrinum í dag. Robbie Keane kom Tottenham yfir eftir 24 mínútur þegar hann skoraði úr vítaspyrnu, en Nicky Shorey jafnaði á 38. mínútu með skoti sem landsliðsmarkvörður Englendinga hefði átt að verja. Aðeins nokkrum mínútum síðar skoraði svo Steven Sidwell annað mark Reading og Kevin Doyle gerði svo út um leikinn á 79. mínútu. Tottenham hafði ekki tapað í 10 leikjum í röð í öllum keppnum fyrir viðureignina í dag, en gengi liðsins á útivöllum er afleitt í deildinni og hefur liðið ekki unnið sigur þar í 8 leikjum í röð. Ívar Ingimarsson var að venju í byrjunarliði Reading og átti ágætan leik, en Brynjar Björn Gunnarsson var á bekknum og spilaði síðustu mínúturnar í leiknum. Reading er því í ágætum málum í deildinni og situr í 11. sæti eins og áður sagði, en Tottenham situr eftir í 12. sætinu sem er langt frá væntingum liðsins eftir gott gengi á síðustu leiktíð.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Botna ekkert í Aþenu: „Margt við þetta lið Hörður minn sem ég átta mig ekki á“ Körfubolti Messi skrópaði í Hvíta húsið Fótbolti Í sárum eftir andlát ungs fótboltamanns Fótbolti Aron spilar ekki fyrr en í milliriðli Handbolti Elon Musk sagður vilja kaupa Liverpool Enski boltinn Slagsmál í æfingaleik hjá mótherjum Íslands á HM Handbolti „Vonandi flyt ég heim til Grindavíkur áður en ég dey“ Körfubolti Mo Salah skýtur á Carragher Enski boltinn Lech Poznan að kaupa Gísla: Mættur í læknisskoðun Fótbolti Segir að Forest fari í titilbaráttu með sigri á Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Arsenal - Newcastle | Stórleikur á Emirates Elon Musk sagður vilja kaupa Liverpool Chelsea vill fá Guehi aftur Segir að Forest fari í titilbaráttu með sigri á Liverpool Son framlengir við Spurs West Ham búið að bjóða Potter starfið Segir fótboltaguðina á móti Luton Milan og Juventus ásælast framherja United Mo Salah skýtur á Carragher Nottingham Forest upp að hlið Arsenal Sir Alex og United goðsagnir í jarðarför: „Hún hefði kunnað að meta það“ Van Dijk sáttur við frammistöðu Trents á móti Man. United Kenndi Zirkzee um klúðrið hjá Maguire Guardiola vill fá þrennu-Grealish aftur Littler fær að sýna bikarinn á Old Trafford Segir Trent frekar eiga heima í Tranmere en Real Madríd „Ef við gerum það ekki allar stundir munum við tapa leikjum“ „Verðum að halda áfram og við munum gera það“ „Ef við getum þetta á Anfield þá getum við þetta alls staðar“ Þrjú víti og Ipswich áfram í fallsæti Jafntefli niðurstaðan í einum af leikjum ársins Amorim segir leikmenn sína hrædda Fá 21 árs Tékka í miðri markvarðakrísu Stórleikurinn fer fram þrátt fyrir snjóinn „Við stýrðum leiknum ekki nægilega vel“ Pep neitar því að sínir menn séu komnir á beinu brautina Willum Þór skoraði þegar Birmingham tyllti sér á toppinn Arsenal mistókst að setja aukna pressu á Liverpool Slæmt gengi gestanna heldur áfram Meistararnir unnu annan leikinn í röð Sjá meira