Enski boltinn

Shevchenko vill koma aftur til Milan

NordicPhotos/GettyImages

Silvio Berlusconi, forseti ítalska knattspyrnufélagsins AC Milan, segir að framherjinn Andriy Shevchenko vilji snúa aftur í raðir liðsins, en hann gekk sem kunnugt er í raðir Englandsmeistara Chelsea í sumar og hefur ekki náð að stimpla sig inn þar á bæ.

"Ég heyrði síðast í honum í síma á föstudaginn þegar hann hringdi í mig. Ég var með hóp af fólki sem fór að syngja "Sheva komdu heim" í einum kór og hann sagði mér að hann vildi glaður snúa aftur til Mílanó," sagði forsetinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×