Viðskipti innlent

Pfaff-Borgarljós verður Pfaff

Fyrirtækið Pfaff-Borgarljós hefur skipt um nafn og mun frá deginum í dag starfa undir nafninu Pfaff. Pfaff var stofnað árið 1929 og er eitt af elstu fyrirtækjum landsins og hefur nú tekið upp sig upprunalega nafn. Pfaff tekur jafnframt upp nýtt merki og slagorðið „heimili gæðanna".

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að nýja slagorðið vísi bæði til þjónustu fyrirtækisins og þeirra vara sem það hefur á boðstólum. Meginstarfssvið Pfaff eru nú fimm talsins: símabúnaður, hljóð, raftæki, saumavélar og ljós.

Fyrirtækið hafði starfað undir nafninu Pfaff allt til ársins 2002 þegar fyrirtækið keypti ljósaverslunina Borgarljós og nafnið Pfaff-Borgarljós var tekið upp. Síðustu ár hefur þróun fyrirtækisins verið hröð og var svo komið að með aukinni starfsemi á fleiri sviðum þótti eigendum og starfsfólki Pfaff-Borgarljósa nafnið ekki nógu lýsandi fyrir fjölbreytt vöruúrval fyrirtækisins.

Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff, segir fyrirtækið hafa staðið frammi fyrir tveimur kostum: Að finna nýtt nafn eða endurvekja upprunalega nafnið. „Við lögðum í vinnu með sérfræðingum áður en ákvörðun var tekin. Það er afskaplega ánægjulegt að segja frá því að vinnan leiddi í ljós að nafnið Pfaff nýtur trausts og mikillar velvildar. Því var engin ástæða til að leita langt yfir skammt," segir hún.

Pfaff rekur verslun og þjónustuverkstæði á Grensásvegi 13 auk þess að vera með umboðsaðila um allt land. Fyrirtækið hefur umboð fyrir fjölda þekktra erlendra vörumerkja á borð við Pfaff, Husqvarna, Braun, Hoover, Candy, Sennheiser, Onkyo, Mackie og Nec Philips.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×