Viðskipti innlent

Framkvæmdastjóraskipti hjá Iceland Express

Matthías Imsland hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Iceland Express.  Matthías mun sinna starfinu tímabundið ásamt öðrum störfum fyrir eignarhaldsfélagið Fons ehf.  Matthías er stjórnarformaður sænska ferðarisans Ticket og breska flugfélagsins Astreaus og situr hann einnig í ýmsum stjórnum stórfyrirtækja fyrir Fons ehf.

Í tilkynningu frá félaginu segir að Birgir Jónsson fráfarandi framkvæmdastjóri, sem lætur af störfum í dag, muni á næstunni taka við starfi framkvæmdastjóra erlendrar starfsemi eignarhaldsfélagsins Kvosar hf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×