Enski boltinn

Berbatov stal senunni í sigri Tottenham

Dimitar Berbatov var betri en enginn í liði Tottenham í dag
Dimitar Berbatov var betri en enginn í liði Tottenham í dag NordicPhotos/GettyImages
Búlgarski sóknarmaðurinn Dimitar Berbatov átti stórleik í dag þegar Tottenham þokaðist loks upp í efri helming ensku úrvalsdeildarinnar með 3-1 sigri á Wigan á heimavelli. Berbatov skoraði eitt mark og lagði upp önnur tvö fyrir þá Jermaine Defoe og Aaron Lennon eftir að Henry Camara hafði komið gestunum yfir snemma leiks.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×